Starfsfólkið á Egilsstöðum hlaut gæðaverðlaun Póstsins
Starfsfólk pósthússins á Egilsstöðum hlaut nýverið gæðaverðlaun fyrirtækisins fyrir framúrskarandi árangur árið 2010. Til grundvallar mati dómnefndar var stuðst við ábendingar viðskiptavina, gæðamælingar og viðhorfskannanir þeirra starfsstöðva sem til álita komu.
Það var niðurstaða dómnefndar að vinningshafinn hafi sýnt miklar almennar framfarir, markvisst bætt gæði þjónustunnar sem veitt er og viðhaldið henni, tekist á við miklar breytingar á framsækinn og atorkusaman hátt og unnið eftir gildum Póstsins: Traust, Vilji, Framsækni.