Sverrir Örn nýr útibússtjóri Arion
Borgfirðingurinn Sverrir Örn Sverrisson hefur hafið störf sem útibússtjóri Arion banka á Egilsstöðum.Sverrir Örn starfaði sem viðskiptastjóri hjá Arion banka á árunum 2016 til 2019 á höfuðborgarsvæðinu og sem viðskiptastjóri í útibúi bankans á Sauðárkróki í rúmt ár þar á undan.
Sverrir hefur sterkar tengingar við Austurland þar sem hann hefur stundað nám og sinnt ýmsum störfum, m.a. í útibúi Arion banka og sem viðskiptastjóri Símans.
Sverrir er viðskiptafræðingur frá Háskólanum á Bifröst og með M.A. í alþjóðaviðskiptum og hagfræði frá Korea University.