Sýnatökuteymi sent til Danmerkur fyrir næstu ferð

Heilbrigðisstarfsmenn verða sendir til Danmerkur fyrir næstu ferð Norrænu til að hægt verði að taka sýni úr farþegum á leiðinni til Íslands. Sýnataka úr um 300 farþegum skipsins á Seyðisfirði gekk vel í gær.

Þetta kemur fram í tilkynningu aðgerðastjórnar almannavarnanefndar Austurlands.

Um borð í gær voru 460 farþegar, þar af þurftu 300 í sýnatöku, en aðrir ekki þar sem þeir höfðu dvalið í landi sem ekki telst til áhættusvæða vegna Covid-19 síðustu 14 daga. Þau lönd eru Færeyjar og Grænland.

Allir ferðamennirnir voru skráðir í miðlægan Covid-grunn er tengist sýnatökunni og leystir út með leiðbeiningablaði almannavarnadeildar og sóttvarnalæknis. Þar kemur meðal annars fram hvernig skuli haga sér meðan niðurstöðu sýnatöku er beðið, einkenni COVID-19 smits og fleira.

Sýnatakan gekk vel eins og afgreiðsla ferjunnar að öðru leyti. Hún hófst fljótlega eftir komu hennar klukkan níu og var að mestu lokið rétt fyrir hádegi.

Stefnt er að því að senda sýnatökuteymi til móts við Norrænu í Hirtshals í Danmörku fyrir næstu ferð hennar. Þá er ferjan komin á sumaráætlun og liggur einungis í tvo og hálfan tíma við festar á Seyðisfirði en rétt um einn og hálfan sólarhring núna. Þessi stutti tími gerir sýnatöku um borð í skipinu í höfn mjög erfiða. Þá er gert ráð fyrir fjölgun farþega um borð og því verið að leita leiða til að auðvelda sýnatöku.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.