Tekjur Austfirðinga 2011: Fljótsdalur
Agl.is birtir í dag árlega samantekt á tekjum Austfirðinga. Teknir eru tekjuhæstu einstaklingar hvers sveitarfélags auk nokkurra einstaklinga úr samfélaginu til að sýna betri þverskurð á samsetningu samfélaganna.
Sjómenn, lykilstarfsmenn Alcoa-Fjarðaáls og læknar eru áberandi í toppsætum listanna í ár, líkt og í fyrra. Ró virðist vera komin á svæðið þar sem litlar breytingar eru á nöfnum þeirra sem á listana komast miðað við fyrri ár. Karlmenn nær einoka listana.
Listarnir byggjast á álagningarseðlum ríkisskattstjóra. Þeir eru birtir með fyrirvara um kærumál vegna útreikninga embættisins og ásláttarvillur.
Hallgrímur Þórhallsson bóndi 787.572 kr.
Þórhallur Þorsteinsson verslunarstjóri 728.917 kr.
Lára G. Oddsdóttir sóknarprestur 628.824 kr.
Gunnþórunn Ingólfsdóttir oddviti 525.186 kr.
Robert Krzyzstof Smiesiulsk 500.003 kr.
Lárus Heiðarsson skógfræðingur 484.153 kr.
Friðrik Ingi Ingólfsson eftirlitsmaður 459.162 kr.
Hjörleifur Kjartansson bóndi 442.399 kr.
Gunnar Gunnarsson nemi 116.901 kr.