„Það er sem jörðin hafi gleypt þá“
Þrátt fyrir mikla leit fjölmargra aðila á stóru svæði hefur enn ekki tekist að hafa upp á tveimur setter-hundum sem struku frá Djúpavogi þann 9. desember síðastliðinn.
Hundarnir Luna og Stitch hlupu brott frá umsjónarmanni sínum þann dag og tóku stefnuna suður til að byrja með. Sást síðast til þeirra á hlaupum í Geithelladal þann 11. desember en síðan hefur enginn orðið þeirra var.
„Það er sem jörðin hafi gleypt þá,“ segir Ólöf Rún Stefánsdóttir umsjónarmaður hundanna. Hún þó alls ekki búin að gefa upp vonina enda séu fjölmargir búnir að aðstoða og enn er fólk sem hefur augun hjá sér.
„Þetta hefur vakið mikla athygli og það af hinu góða því fleiri sem vita af leitinni því betra. Það versta er að vita ekkert í hvaða átt þeir héldu frá Geithellum þar sem til þeirra sást síðast. Hvort þeir héldu sunnar eða fóru upp í fjöllin þaðan er alls óljóst. Það er þó ekki svo að öll nótt sé úti enn. Það er alveg þekkt að þessir hundar geta farið langar leiðir en samt skilað sér til baka. Þetta eru líka veiðihundar svo að þeir eiga að geta fundið sér æti ef svo ber undir.“
Ólöf vill koma allra bestu þökkum til þeirra sem hafa lagt sig eftir að leita hundanna frá fyrsta degi. Sjálf vonast hún innilega til að jólagjöfin þetta árið verði að þeir komi í leitirnar áður en Aðfangadagur gengur í garð.
„Það væri hin allra besta jólagjöf.“