Þórunn snýr aftur á Alþingi
Þórunn Egilsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins frá Vopnafirði, snýr aftur á Alþingi í dag. Hún hefur ekki tekið þátt í þingstörfum síðan um miðjan mars í fyrra þegar hún greindist með brjóstakrabbamein.Þetta kemur fram í færslu frá Þórunni á Facebook-síðu Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi í gær.
Þar segir hún undanfarið ár hafa verði bæði lærdómsríkt og krefjandi. Hún sé þakklætis fyrir góðan árangur í baráttunni við meinið og kveðst horfa hress og bjartsýn til framtíðar.
Hún sendir öllum sem stutt hafi hana í veikindunum hlýjar kveðjur, sérstaklega þó Líneik Önnu Sævarsdóttur, hinum þingmanni flokksins í kjördæminu, Hjálmari Boga Hafliðasyni varaþingmanni og Þórarni Inga Péturssyni sem kom inn í hennar stað með stuttum fyrirvara.
Ljóst er að framundan er strembinn fyrsti dagur hjá Þórunni. Samkvæmt dagskrá þingsins átti hún að vera á fjarfundi hjá stjórnskipunar og eftirlitsnefnd Alþingis nú í morgun og formenn þingflokka funda nú klukkan ellefu áður en þingfundur hefst klukkan 15.
Málefni samgönguráðherra eru áberandi á dagskrá hans en meðal annars stendur til að ræða tillögur hans um að ríkið taki þátt í að tryggja sama verð á flugvélaeldsneyti um allt land og fjármögnun einkaaðila á vegaframkvæmdum en vegur yfir Öxi er þar á meðal þeirra framkvæmda til stendur að ráðast með þeim hætti.