Þrjú hreindýr drápust í árekstri
Þrjú hreindýr drápust þegar þau urðu fyrir fólksbifreið á Háreksstaðaleið í morgun.Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var tilkynnt um atvikið laust fyrir klukkan hálf níu. Atvikið átti sér stað á þjóðveginum ekki fjarri eyðibýlinu Háreksstöðum sem vegstæðið er kennt við.
Bifreiðin var óökufær á eftir en ökumaður hennar slapp ómeiddur. Starfsmenn Fljótsdalshéraðs komu síðan á vettvang og hreinsuðu til eftir slysið.
Síðustu dagar hafa annars verið tíðindalitlir hjá lögreglu. Þorrablótavertíðin stendur nú yfir og hafa blótin að mestu farið vel fram.