Tvær vikur frá síðasta smiti
Í dag eru sléttar tvær vikur frá því síðast greindist covid-19 smit á Austurlandi. Af þeim átta sem alls hafa greinst á svæðinu er einn einstaklingur enn með virkt smit og því í einangrun.Sex eru í sóttkví, helmingi færri en í gær.
Í tilkynningu aðgerðastjórnar almannavarnanefndar Austurlands kemur fram að níu einstaklingar á svæðinu séu í svokallaðri sóttkví B. Þar er um einstaklinga að ræða sem komið hafa erlendis frá til starfa hér á landi og sinna sínum störfum á tilteknum afmörkuðum stöðum eða svæðum og án beinna samskipta við aðra.