Tvö útköll vegna göngufólks á Seyðisfirði
Björgunarsveitir hafa síðustu daga tvisvar verið kallaðar út á Seyðisfirði vegna göngufólks í vandræðum. Á Borgarfirði var björgunarsveitin fengin til að bjarga því að bíll ylti á leiðinni úr Húsavík.Björgunarsveitin Ísólfur á Seyðisfirði var upp úr hádegi í gær kölluð út vegna göngumanns sem hafði slasast á fæti við Búðarárfoss. Sjúkrabíll kom einnig frá Egilsstöðum. Aðgerðin gekk hratt og vel.
Fjöldi fólks var á Seyðisfirði í gær. Þrjú skemmtiferðaskip voru í höfn því eitt þeirra hætti við að fara til Djúpavogs vegna veðurs.
Á sunnudag voru björgunarsveitir kallaðar út vegna göngumanns sem taldi sig í sjálfheldu við Vestdalsvatns. Skömmu síðar var útkallið afturkallað því annar gönguhópur var kominn að göngumanninum og gat aðstoðað hann á rétta braut.
Á föstudag var Björgunarsveitin Sveinungi á Borgarfirði kölluð út vegna bíls í vanda á leið úr Húsavík. Bíllinn hafði lent út af þröngum veginum og þaðan ofan í for. Hann vó því nánast salt á vegöxlinni.
Þar sem aðrir þjónustuaðilar voru ekki tiltækir fór björgunarsveitin á staðinn til að tryggja að bíllinn færi ekki á hliðina. Björgunarsveitin fékk aðstoð bíleigenda úr nágrenninu til að halda við bílinn meðan nýr björgunarsveitarbíll, sem Sveinungi fékk fullbúinn í fyrra, spilaði bílinn upp á veginn.
Bergvin Snær Andrésson, formaður Sveinunga, segir það hafa gengið vel með að fara varlega því bíllinn hafi verið mjög tæpur á vegöxlinni. Afar þakklátir ferðalangar hafi síðan getað haldið ferð sinni áfram.
Myndir: Björgunarsveitin Sveinungi/Hlynur Sveinsson