Uppsagnir hjá StarfA standa: Höfum fengið svona loforð áður

starfa.jpgErla Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Starfsendurhæfingar Austurlands (StarfA) segir að stofnunin hafi áður fengið vilyrði frá ríkinu um stuðning. Uppsagnir starfsfólks standi því.

 

„Það þarf meira en vilja,“ sagði Erla í samtali við Austurgluggann í seinustu viku aðspurð um vilyrði Velferðarráðuneytisins um endurnýjun samninga við starfsendurhæfingar að minnsta kosti út árið sem sagt var frá í fréttum.

Í dagu eru liðnar tvær vikur frá því að starfsfólk StarfA fékk afhent uppsagnarbréf og að öllu óbreyttu leggst starfsemin af 1. júní.

Blaðið hefur eftir Erlu að StarfA hafi fengið álíka svör allt síðasta ár og beðið hafi verið eftir skýrari svörum frá ráðuneytinu um samninga til lengri tíma en tveggja mánaða. Ítrekað hafi borist skilaboð um að viljinn til endurnýjunar sé til staðar en lítið orðið úr honum.

„Uppsagnirnar standa því enn sem komið er enda hefur ekkert breyst.“

Nánar er fjallað um málið í nýjasta tölublaði Austurgluggans.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar