Lögregla varar við hreindýrum á Hólmahálsi
Lögreglan á Austurlandi varar þá sem leið eiga um Hólmaháls milli Reyðarfjarðar og Eskifjarðar við hreindýrum sem þar halda sig.Þetta kemur fram á vef RÚV fyrir stuttu. Dýrin hafa haldið sig austan við Fjarðaál í Reyðarfirði og hefur lögreglan áhyggjur af því að dýrin geti valdið slysum með því að hlaupa fyrirvaralaust yfir veginn.