Vegrofið skaðar austfirska ferðaþjónustu
Rofið á Hringveginum á Suðurlandi hefur orðið til þess að ferðamenn hafa afbókað pantanir á Austurlandi. Þetta segir Ásta Þorleifsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Austurlands.
Ferðaþjónustuaðildar í Skaftafellssýslum hafa komið fram í fjölmiðlum
síðustu daga og líst áhyggjum sínum af tugmilljóna tapi sem kunni að
hljótast af afbókunum þar sem ferðamenn komist ekki þá leið sem þeir
vilja. Áhrifanna gætir áfram austur eftir.
„Það hefur orðið vart við afbókanir, jafnvel hópa sem voru á
malbiksrútum. Það hefur sín áhrif á sölu I gistingu, mat og fleiru,“
sagði Ásta í samtali við Agl.is í dag.
„Þetta fólk snýr þá við á Mývatni eða Jökulsárgljúfrum og fer aftur til baka um Norðurland.“