Vetur og sumar frusu saman á Jökuldal
Almennt virðist hafa verið svo síðustu nótt að sumar og vetur hafi ekki frosið saman á láglendi á Austurlandi. Næturfrost mældist inn til dala og upp til fjalla.
Þetta gefur lausleg athugun Austurfréttar á tölum frá austfirskum veðurstöðvum til kynna en samkvæmt þjóðtrúnni veit á gott þegar sumar og vetur frjósa saman, þ.e. næturfrost mælist aðfaranótt sumardagsins fyrsta.
Samkvæmt athugun Austurfréttar er eini mælirinn á láglendi sem sýndi frost í nótt á Brú á Jökuldal, frá því um miðnætti og fram til um klukkan tíu í morgun.
Frost mældist einnig á Vatnsskarpi, Vopnafjarðarheiði, í Möðrudal, Eyjabökkum, Jökuldal og Breiðdalsheiði.
Ekkert frost sést á mælum eins og á Kollaleiru, Dalatanga, Fáskrúðsfirði, Norðfirði, Egilsstöðum, Hallormsstað, Teigarhorni, Kambanesi eða Skjaldþingsstöðum.
Veðurfræðingurinn Trausti Jónsson bendir á bloggsíðu sinni á að ekki víst að nútímafólk skilgreini gott sumar líkt og gert var áður fyrr.
Gott sumar var mælt í mjólkurmagni kúa og áa. Ekki voru til staðar hitamælar heldur áttu menn að leggja út grunnan disk með vatni og höfðu vetur og sumar frosið saman ef á því var þykkt skæni.
Skrifar Trausti að „alloft hafi verið vit í gömlum veðurspádómum“ en þessi verði að teljast „fullkomin della.“