Völva Agl.is: Að lokum

volvumynd_web.jpgEftir áföll seinustu mánaða er íslenska þjóðin farin að sjá í gegnum spuna sem á borð fyrir hana er borin. Þetta er meðal þess sem fram kemur í lokaorðum völvu Agl.is.

 

Það er búið að predika pólitík svo lengi yfir þjóðinni að hún fer að geta lesið sannleikann í gegn um allt kjaftakófið. Dæmi um það er að á þessu ári á að minnast Jóns Sigurðssonar frelsishetju sem færði okkur möguleika til að verða sjálfstæð þjóð. Á sama tíma á að svipta þjóðina sjálfstæði með því að ganga inn í gjaldþrota Evropu. „Ætlar þá einhver að mótmæla?“

Við skulum ekki gleyma því að Katla á eftir að gjósa, þó það verði kannski ekki fyrr en búið er að veita Markarfljóti austur. Þá verður mikill skaði á þeirri bújörð sem slapp best við síðasta eldgos. Þá verður líka fjáraustur stöðvaður á þessum slóðum í samandi við Landeyjarhöfn. Það dugir ekki að snupra forsetann til að koma í veg fyrir eldgos.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar