Værum ekki að leita að gulli nema við hefðum eitthvað fyrir okkur
Tomas Abraham James, forstöðumaður hjá ástralska námafyrirtækinu Platina Resources, er bjartsýnn á að gull finnist í vinnanlegu magni á Austurlandi. Unnið er að fá leyfi hjá landeigendum til rannsókna.
Í samtali við Pressuna segir James að hann vonist til að leyfi til rannsókna fáist í haust eða snemma á næsta ári. Fyrirtækið væri ekki að leita fyrir sér hér nema hafa sterkan grun um að gull finnist. Talsvert jarðrask fylgir því ef gul finnst.
Samkvæmt heimildum Pressunnar er ekki verið að skoða sérstakar gullæðar heldur sé stefnt að því að vinna gull úr berginu sjálfu. Nægjanlegt magn sé til staðar í austfirsku bergi á ákveðnum stöðum til að vinna gull en ekki sé ljóst hvort svæðið sé nógu stórt til að vinsla borgi sig.