Aðalmeðferð í Djúpavogssmygli
Aðalmeðferð í máli gegn sex karlmönnum sem sakaðir eru um að hafa reynt að smygla ríflega eitt hundrað kílóum af fíkniefnum til landsins með skútu í gegnum Djúpavog í apríl fer fram í héraðsdómi Reykjavíkur í dag.
Fimm mannanna eru Íslendingar en sá sjötti, Peter Rabe, Hollendingur. Hann er kærður fyrir að skipuleggja innflutninginn. Efnin sem gerð voru upptæk í málinu voru 55 kg af amfetamíni, 54 kg af kannabis og rúm 9 kíló af MDMA töflum. Efnin komu frá Belgíu með skútunni Sirtaki. Slöngubát var siglt á móts við hana við Djúpavog. Þar var efnunum skipað upp í bíl og ekið af stað með þau áleiðis til Selfoss. För þess bíls var stöðvuð og síðan hófst eltingaleikurinn við skútuna.
Á Selfossi stóð til að afhenda efnin óþekktum aðila. Hinir ákærðu hafa neitað að segja til hans.