Elvis - leiðin heim frumsýnt á morgun
Elvis - leiðin heim, er barnaleikrit fyrir alla fjölskylduna eftir Sigurð Ingólfsson og verður frumsýnt í Bragganum á Egilsstöðum þann 30. maí næstkomandi. Leikritið fjallar um hundinn Elvis sem stingur af heiman frá sér og hittir ýmis dýr á ferðum sínum. Honum er þó hugleiknast að komast heim til sín og um það fjallar leikritið.
Tónlistin í verkinu er samin og stjórnað af Magnúsi Helgasyni, fyrir utan Fangablús sem er íslensk útgáfa af Jailhouse
Rock með Elvis Presley í útsetningu Magnúsar Helgasonar. Tónlistin tengir saman persónurnar í verkinu, sem vita það að án þess að eiga sitt lag, eru þau týnd. Börn og fullorðnir leika í verkinu, Elvis er leikinn af Sigurði Borgari Arnaldssyni. Sigurður Ingólfsson leikstýrir.
Frumsýning laugardagur 30. maí kl. 15:00
2. sýning þriðjudagur 2. júní kl. 20:00
3. sýning laugardagur 6. júní kl. 13:00
4. sýning laugardagur 6. júní kl. 17:00
5. sýning sunnudagur 7. júní kl. 15:00
6. sýning miðvikudagur 10. júní kl. 20:00
7. sýning sunnudagur 14. júní kl. 17:00
8. sýning miðvikudagur 17. júní kl. 17:00
Leikfélag Fljótsdalshéraðs setur upp barnaleikritið
Elvis - leiðin heim í Bragganum við hliðina á
Sláturhúsinu, menningarsetri á Egilsstöðum.
Aðgangseyrir er kr. 1.000,- fyrir alla. (Ekki tekið við kortum)
Miðapantanir eru í síma 862-3465.
Athugið að mæta tímanlega á sýningu og ágætt að vera
vel klæddur þar sem Bragginn er ekki upphitaður.