Gríðarmikið gagnamagn í Breiðdalssetri
Síðustu vikur hefur verið unnið í því að flokka og greina gögn breska jarðfræðingsins George P. L. Walker í Breiðdalssetrinu á Breiðdalsvík. Um er að ræða meðal annars gríðalegt magn af ljós- og slidesmyndum (u.þ.b 20.000 þúsund) víðs vegar að úr heiminum.
Síðasta haust afhentu ekkja og dóttir Walkers Breiðdælingum með formlegum hætti gríðalegt magn af gögnum eða rúmlega 2 tonn. Í þessu safni eru til dæmis myndir, bréf, skýrslur, dagbækur og fjöldinn allur af jarðlagakortum sem liggja eftir þennan virta jarðfræðing sem vann lengi við að kortleggja og rannsaka jarðlögin á Íslandi.
Þegar er byrjað að færa þessar viðamiklu heimildir yfir á stafrænt form. Hver einasta mynd var nákvæmlega skráð af hendi Walkers, þ.e. staðsetning, dagur og tími, tegund myndavélar og filmu, og síðan ekki síst af hverju myndin er.