Hraðbraut eða hraðahindrun ?
Norðfirðingar ráku upp stór augu á mánudagsmorgun þegar þeir komu auga á hraðahindrun á þaki Verkmenntaskólans.
Hraðahindrunin, sem er að öllu venjulegu á Mýrargötunni beint fyrir ofan skólann, er frekar umdeild eins og aðrar í nágrenninu. Íbúarnir í nágrenninu vilja hafa þær en einhverjir eru það sem telja þær ekki nauðsyn.
Á undanförnum árum hafa verið heitar umræður milli íbúa í ákveðnum hverfum og yfirvalda að fá hraðahindranir í íbúðahverfi og jafnframt um staðsetningu þeirra. Eftir að niðurstaða komst í þau mál eru síðan einhverjir sem finna hjá sér þörf fyrir að skrúfa þær upp og fjarlægja og er þetta enn eitt dæmið um slíkt.
Norðfirðingar velta fyrir sér hverjir það eru sem fjarlægja hraðahindranirnar í bænum eru þetta einhverjir sem vilja lengja nám sitt í Verkmenntaskólanum og setja því hindrunina upp á þak skólans eða er þetta ábending um að sett verði upp harðbraut við skólann?
Austurglugginn/Áslaug