Kajakræðari rær í kringum landið
Gísli Friðgeirsson ræðari er nú á leið sinni í umhverfis Ísland á kajak. Ferðin hófst þann 1.júní í Reykjavík og hefur gengið ágætlega. Hann er núna á ferð með fram Suðurströndinni.
Í seinustu viku kom hann við í Neskaupstað, hvíldist og safnaði kröftum í félagsaðstöðu Kaj áður en hann hélt til Breiðdalsvíkur. Félagar frá Kaj tóku vel á móti Gísla i í Loðmundafirði og réru með honum til Norðfjarðar en einnig komu tveir ræðarar frá Norðfirði á móti þeim áleiðis að Dalatanga og réru með þeim til baka í heimahöfn Kaj.
Fylgjast má með ferðum Gísla á vefsíðunum www.123.is/kaj og http://www.kayakklubburinn.com/isl/
ÁL
Gísli í hvíldarhöfn á Norðfirði. Mynd: Ari Ben