Körfubolti: Heldur Höttur deildarsætinu?

Svo kann að fara að Höttur, sem féll úr fyrstu deild karla í körfuknattleik í vetur, haldi sæti sínu í deildinni. ImageÍG, sem ávann sér rétt til að fara upp úr 2. deild karla, hefur hafnað tilboðinu. Málið skýrist eftir helgi en hjá skrifstofu Körfuknattleikssambands Íslands í morgun fengust þær upplýsingar að talað yrði við Hött ásamt einu liði í 2. deild um að taka sætið.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar