Von á 280 krökkum
Fjarðaálsmótin í 6. flokki drengja og stúlkna og 7 flokki (blönduðum) verða háð í Fjarðabyggðarhöllinni á laugardag, 16. maí. Skráð eru til leiks 28 lið og því von á allt að 280 börnum og vonandi tölvert fleiri foreldrum. Á vef Leiknis segir að trúlegt þyki að þetta verði fjölmennasta knattspyrnumót sem haldið hefur verið á Austurlandi.
Liðin koma frá Höfn, Djúpavogi, Egilsstöðum, Seyðisfirði, Þórshöfn, Akureyri og úr Fjarðabyggð.