Grunnskólabörn á Stöðvarfirði tóku vel á móti glæsilegum fornbílunum í gær sem taka þátt í góðaksturkeppni breska bílaklúbbsins HERO. Bílarnir komu síðar um daginn meðal annars við hjá Alcoa á Reyðarfirði og í Shell á Egilsstöðum. Fornbílarnir og gamaldags klæddir bílstjórarnir vöktu að sjálfsögðu verskuldaða athygli hvar sem þeir komu.
Þjóðveginum um Fagradal hefur verið lokað vegna skriðufalla um óákveðinn tíma. Ausandi rigning hefur verið á Fagradal í dag. Líklegt er að vegurinn verði opnaður aftur með morgninum.
Þingmenn Norðausturkjördæmis funda í hádeginu vegna fjárhagsstöðu Heilbrigðisstofnunar Austurlands (HSA). Fundurinn er haldinn að frumkvæði þingmanna Framsóknarmanna.
Samkvæmt heimildumAusturgluggans er fjárhagsleg staða HSA, Heilbrigðisstofnunar Austurlands, vægt til orða tekið bágborin þessa dagana. Fjárheimildir virðast ekki duga fyrir útgjöldum og er fjöldi lánadrottna orðin óþolinmóður vegna stöðunnar.
Ben Hill frá Nýja Sjálandi sem spilaði með Hetti í körfunni á síðasta tímabili er mættur aftur til Egilsstaða. Hann segist ætla að spila með Hattarliðinu í vetur, en um tíma leit út fyrir að hann spilaði með Njarðvíkingum í vetur.
Ekið var á 11 ára gamlan dreng í Fellabæ á fimmta tímanum í dag. Drengurinn var á reiðhjóli. Hann er ekki talinn alvarlega slasaður en var þó fluttur með sjúkraflugi til Akureyrar. Þar mun hann gangast undir ýtarlega rannsókn. Þetta kom fram í svæðisfréttum RÚV í dag.