Stjórnarfundur 27.11.2004.
kl 16:50 að afloknum aðalfundi á Hótel Héraði.
Mættir:
Guðrún Katrín Árnadóttir
Kristinn V. Jóhannsson
Sigfús Vilhjálmsson
Sveinn Jónsson
1.Aldursforseti setti fundinn
Aldursforseti, Kristinn, setti fund og gerði tillögu um að Guðrún yrði áfram formaður – samþ.
Guðrún tók við stjórn og gerði tillögu um Kristinn sem varaformann – samþ. og að Sveinn yrði ritari - samþ.
2. Símafundur
Samþykkt að hafa símafund stjórnar á næstunni og helst áður en fundað yrði með fulltrúa Byggðastofnunar og Alcoa í næstu viku.
3. Ferð í Kárahnjúka
Fyrirhugað er að stjórnin fari í Kárahnjúka til að skoða heilborun hjá Impregilo laugardaginn 11. desember n.k. Sigurður Gunnarsson starfsmaður þeirra annast unirbúning í samráði við fulltrúa Landsvirkjunar.
Fleira ekki og fundi slitið 17:10
Sveinn Jónsson ritaði
Stjórnarfundur 22.06. 2004
Haldinn á Hótel Héraði kl. 17:00.
Mættir voru Guðrún Katrín, Sveinn Sigurbjarnarson, Jörundur Ragnarsson, Jónas Hallgrímsson og Hrafnkell A Jónsson.
1. Bréf frá Samgönguráðuneytinu
Tekið var fyrir svarbréf Samgönguráðuneytisins dags. 22.mars 2004 við bréfi framkvæmdarstjóra SSA sem hann ritaði fyrir hönd samgöngunefndar SSA dags. 2. Janúar 2004 . Í bréfinu óskar SSA eftir því við samgönguráðuneytið að unnin verði heilstæð jarðgangaúttekt fyrir Austurland.
Stjórn SAMGÖNG sættir sig ekki við svar Samgönguráðuneytisins og var Jónasi Hallgrímssyni falið að svara bréfi Samgönguráðuneytisins .
2. Bréf til fyrirtækja
Ákveðið var að senda Fyrirtækjum á Austurlandi bréf þar sem óskað væri eftir stuðningi þeirra við markmið samtakanna.
3. Kanna kaup á borunum
Rætt var um mikilvægi þess að nýta bora þá sem nú eru í notkun við gerð jarðganga í Kárahnjúkum til áframhaldandi jarðgangagerða í fjórðungnum. Stjórn samtakanna telur mikilvægt að kannaður verði áhugi ítalanna á sölu boranna.
4. Kynning á markmiðum samtakanna
Ræddar voru ýmsar leiðir til að kynna markmið samtakanna enn frekar s.s með gerð límmiða í bíla o.fl.
Fleira var ekki tekið fyrir fundi slitið kl. 18;00
Stjórnarfundur 07. 08. 2003. búið
Fundurinn var haldinn á Hótel Héraði Egilsstöðum og hófst kl. 17:00.
Mættir:
Guðrún Katrín
Jörundur
Kristinn
Sigfús
Hrafnkell mætti kl. 17:30.
Formaður Guðrún Katrín, setti fund og stjórnaði honum. Hrafnkell ritaði fundargerð.
Gengið var til dagskrár:
1. Aðalfundur 2003.
Samþykkt að halda aðalfund um mánaðarmót september, október. Fundarstaður Hótel Hérað Egilsstöðum.
Rætt um að fá Helga Hallgrímsson fyrrverandi vegamálastjóra til að flytja erindi um jarðgöng á Austurlandi. Sigfús tók að sér að ræða við Helga.
Guðrún Katrín upplýsti að þar sem hún flyst tímabundið af svæðinu, þá muni hún ekki taka að sér formennsku á næsta ári. Rætt um að gera tillögu um Sigfús Vilhjálmsson sem formann næsta ár.
2. Önnur mál.
Stjórnin samþykkti að leita eftir því að fulltrúi SAMGÖNG einn eða fleiri fái seturétt á Samgönguráðstefnu SSA sem fyrirhugað er að halda í október n.k. Guðrúnu var falið að koma erindi til SSA.
Fundur hófst kl. 17:00.
Mættir: Guðrún Katrín Árnadóttir, Sveinn Sigurbjarnarson, Sigfús Vilhjálmsson, Kristinn V. Jóhannsson og Hrafnkell A. Jónsson.
Formaður Guðrún Katrín setti fund og stjórnaði honum, Hrafnkell ritaði fundargerðina.
Gengið var til dagskrár.
1. Bréf til fyrirtækja
Formaður dreifði bréfi dags. 27. ágúst 2004 sem sent var til fyrirtækja á Austurlandi. Þar voru markmið SAMGÖNG kynnt og óskað eftir stuðningi við þau. Jafnframt dreifði formaður lista yfir þau fyrirtæki sem leitað var til. Ákveðið var að fylgja bréfinu eftir og skiptu viðstaddir stjórnarmenn á milli sín því verkefni að hafa samband við forsvarsmenn þeirra fyrirtækja sem fengu fyrrgreint bréf.
2. Bréf til Háskóla
Formaður kynnti síðan bréf undirritað af formanni og varaformanni, sem sent var háskólastúdentum, þar voru markmið samtakanna kynnt og bent á að margt varðandi jarðgangagerð og áhrif þeirra á margvíslega þætti byggðaþróunar gætu verið áhugaverð rannsóknarverkefni sem lokaverkefni í háskólanámi.
3. Stofnun félags um jarðgöng.
Formaður ræddi um hugmyndir sínar um að á Austurlandi yrði stofnað félag um jarðgangagerð svipað og Spölur hf. sem stóð að gerð Hvalfjarðarganga og þegar hefur verið gert varðandi gangagerð undir Vaðlaheiði og til Vestmannaeyja. Stjórnarmenn töldu ekki tímabært að stofna slíkt félag, hins vegar kom fram að nauðsynlegt væri að fá burðuga bakhjarla á Austurlandi líkt og gert hefur verið annars staðar. Til að undirbyggja frekar rök fyrir aðgerðum í jarðgangamálum þótti vænlegt að leita liðs hjá Þróunarstofu Austurlands.
4. Tillaga
Eftirfarandi tillaga var samþykkt samhljóða
“Fundur í stjórn SAMGÖNG haldinn á Hótel Héraði 4. nóvember 2004, beinir því til Þróunarstofu Austurlands að standa fyrir ráðstefnu um samgöngur á Austurlandi, með áherslur á jarðgangagerð. Þar verði leitað svara við spurningunni, hvernig gerum við Austurland að einu atvinnu-og þjónustusvæði?.”
4. Aðalfundur SAMGÖNG
Samþykkt var að stefna að aðalfundi í SAMGÖNG laugardaginn 27. nóvember n.k. og verði fundurinn haldinn á Egilsstöðum.
Stjórnarfundur 21.11.2003
Haldinn á Fosshótel Reyðarfirði Kl. 15:30
Mætt voru : Guðrún Katrín Árnadóttir, Sveinn Sigurbjarnarson , Jörundur Ragnarsson og Sigfús Vilhjálmsson.
1. Jólakveðja
Rætt var um að senda þingmönnum jóla eða nýárskveðju frá samtökunum.
2. Faglegur ráðgjafi
Guðrún Katrín sagði fundarmönnum frá því að Svein Jónsson væri jákvæður fyrir því að vera faglegur ráðgjafi samtakanna.
3. Ræða við bæjarstjórnarmenn
Ákveðið var að ræða við bæjarstjórnarmenn á Héraði um mikilvægi
þessa ganga.
4. Efla umræðu
Stjórn samtakanna var sammála um að efla þyrfti umræðu um jarðgöngin meðal almennings, ákveðið var að gera átak í því m.a. með viðtölum í útvarpi og blaðaskrifum.
Stjórn SAMGÖNG hittist á Fosshóteli, Reyðarfirði þann 29.07.2004 kl. 17:00.
Mættir voru . Guðrún Katrín, Sveinn, Sigfús og Kristinn.
Dagskrá :
1. Staða verkefna sem eru í gangi
2. Bréf til sveitastjórna á Mið – Austurlandi
3. Kynning á heilborun
4. Önnur mál
1. Staða verkefna sem eru í gangi
Bréf sem senda átti fyrirtækjum til kynningar er ekki farið, en verður sent næstu daga. Sama er að segja um bréf til Samgönguráðuneytisins vegna nokkurra óljósra atriða í svari ráðuneytisins við bréfi SSA frá 22. mars í vetur.
Þá lá ekki fyrir hvort Jörundur hafi rætt við Valgerði iðnaðar og byggðamálaráðherra um að ýta á eftir því að Byggðastofnun hefðist handa við úttekt á þeim jarðgangakostum, sem SAMGÖNG hafa beint sjónum sínum að.
2. Bréf til sveitastjórna
Stjórnin samþykkti að skrifa öllum sveitafélögum á Mið – Austurlandi í tilefni þess að í haust verður vegaáætlun endurskoðuð og hvetja þau til að þrýsta á stjórnvöld að setja aukinn kraft í jarðgangagerð og benda á að samgönguskortur í dag stendur uppbyggingu fyrir þrifum. Svæðið þarf að opna svo það geti tekið við verkefnum.
3. Kynning á heilborun
Á fundinn mættu Einar Már Sigurðsson alþingismaður og Sigurður Gunnarsson starfsmaður við borun á Fljótsdalsheiði.
Sigurður útskýrði fyrir stjórnarmönnum getu boranna, sem Impreglio notar, en þeir eru með borkrónu sem er 7,52 m í þvermál.
Sigurður benti á að mikilvægt væri að Vegagerðin setti sér staðal um breidd vega í veggöngum. Ýmsan annan fróðleik kynnti Sigurður stjórninni um afköst þessara bora, verð við gangagerð ofl. Er greinilegt af máli hans , að ef Íslendingar bæru gæfu til að taka upp þessa heilborunartækni í stað sprengiaðferðarinnar mundi kostnaður snarlækka og verkhraði stóraukast.Taldi Sigurður afköst eiga að vera 40 – 50 metra á sólarhring og að verð pr/km. Væri a.m.k. 30- 40% lægra en með hefðbundinni sprengiaðferð.
Rætt var um möguleika á því að stjórnin kæmist upp að Kárahnjúkum og fengi að sjá borana vinna.
Fleira var ekki tekið fyrir, fundi slitið kl. 18:30
Nýkjörin stjórn SAMGÖNG kom saman til fundar á Hótel Héraði laugardaginn 4. okt. 2003 og skipti með sér verkum.
Tillaga kom fram um formann Guðrúnu Katrínu Árnadóttur, Jörund Ragnarsson sem gjaldkera og Hrafnkel A. Jónsson sem ritara. Tillagan var samþykkt samhljóða.