Bæjarráð Fljótsdalshérað hefur afráðið að sveitarfélagið fari í allt að þriggja milljarða króna skuldabréfaútboð í samræmi við lánsfjárþörf Fljótsdalshéraðs næstu þrjú árin.
Á fundi bæjarráðs 14. janúar síðastliðinn kynntu bæjarstjóri og fjármálastjóri viðræður sem fram hafa farið við fjármálastofnanir í tengslum við lánsfjármögnun fyrir sveitarfélagið. Samþykkti bæjarráð í framhaldi að undirbúningur skyldi hafinn að skuldabréfaútboði.
Mennaskólinn á Egilsstöðum tryggði sér í kvöld sæti í fjórðungsúrslitum spurningakeppni framhaldsskólanna, Gettu betur. Liðið lagði lið Menntaskólans á Ísafirði í gríðarlega spennandi keppni, 16-14. Menntskælingar gátu ekki dulið hamingju sína eftir keppnina.
Kvittur er á Egilsstöðum um að mótmælendur ætli að safnast saman á planinu hjá Kaupfélagi Héraðsbúa kl. 20 í kvöld. Um skipulögð mótmæli virðist ekki vera að ræða, en svo virðist sem hugur sé í fólki eystra, ekki síður en í Reykjavík og um allt land.
Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs hefur samþykkt að sveitarfélagið gerist aðili að Evrópusáttmála um jafna stöðu kvenna og karla í sveitarfélögum og héruðum. Var tillaga þar um samþykkt samhljóða á fundi bæjarstjórnar um miðjan janúar.
Fólk var byrjað að safnast saman á kaupfélagsplaninu á Egilsstöðum laust fyrir klukkan hálf átta í kvöld og hvatti Egilsstaðabúa og alla sem vilja til að mæta sem fyrst með potta, pönnur og annað slagverk og mótmæla ríkisstjórninni.
Næsti skipulagði mótmælafundur mun að sögn forsvarsmanna verða á laugardaginn kemur í Tjarnargarðinum og hefst klukkan 15.
Um þrjátíu manns þegar mest lét stóðu mótmælavakt í miðbæ Egilsstaða í kvöld og kröfðust þess að ríkisstjórnin færi frá. Voru mótmælendur með gjallarhorn og ýmis ásláttarhljóðfæri til að undirstrika kröfu sína. ,,Ekki meir Geir" hljómaði í kvöldloftinu. ,,Við ætlum að hittast hér aftur annað kvöld kl. 20 og halda áfram mótmælum" sögðu ungar konur sem staðið höfðu mótmælavaktina frá því um kvöldmatarleytið. Fólkið kveikti eld á planinu og notaði til þess vörubretti. Óeinkennisklæddur lögreglumaður birtist þegar líða tók á mótmælafundinn og tók mynd af viðstöddum. Fundurinn fór einkar friðsamlega fram.
Á morgun, fimmtudag, opnar ljósmyndasýning í Safnhúsinu á Egilsstöðum. Hún ber heitið „Til gagns og fegurðar“. Myndirnar á sýningunni eru fengnar úr samnefndri sýningu sem var í Þjóðminjasafni Íslands fyrri hluta árs 2008. Þema „Til gagns og fegurðar“ er útlit og klæðaburður Íslendinga á árabilinu 1860-1960.