105 íbúðir í byggingu á Austurlandi

105 nýjar íbúðir eru í byggingu á Austurlandi, samkvæmt talningu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar frá í september.

Talið er á vegum HMS tvisvar á ári þannig að farið er að á byggingasvæði, annars vegar í mars, hins vegar í september. Fjöldi nýrra framkvæmda minnkaði á þessu tímabili, úr 34 í 28. Það gildir heilt yfir landið og er Austurland trúlega sá landshluti þar sem hlutfallslega minnst dregur úr framvindu.

Í Múlaþingi er 63 íbúðir í byggingu, þó engar á stigum 6 eða 7 en íbúð á stigi sex má telja tilbúna. Þar eru hins vegar níu íbúðir á stigi 5 en þá er eftir að innrétta og mála. Fjórtán eru fokheldar, sem er stig 4, níu eru á stigi þrjú þar sem búið er að steypa botnplötu og byrjað reisa burðarvirki. Sjö eru á stigi tvö þar sem grunnur er tilbúinn.

Flestar, eða 24, eru á stigi eitt sem þýðir að byggingarleyfi er útgefið og jarðvinna hafin. Sú tala stemmir við fyrirhugað fjölbýlishús sem eldri borgarar á Egilsstöðum hafa tekið höndum um að byggja en þar var fyrsta skóflustungan tekin í júní.

Í Fjarðabyggð eru 42 nýjar íbúðir í byggingu, þar af 16 á stigi sex. Er þar trúlega um að ræða íbúðir sem reistar eru fyrir SÚN í Neskaupstað en þar biðu þá lokafrágangs sem er forsenda sjöunda og síðasta stigsins. Ellefu íbúðir eru á stigi 4, það er fokheldar og 9 á stigi þrjú.

Í samantekt HMS er að finna ýmsa tölfræði um nýbyggingar íbúða í landinu. Þar kemur fram að útlit sé fyrir samdrátt í fjölda fullbúinna íbúða þriðja árið í röð og sú þróun haldi áfram á næsta ári. Eins er greint frá því að ekkert hafi gerst á milli talninga í fleiri íbúðum en áður. Þær tölur eru ekki sundurgreindar eftir landshlutum eða sveitarfélögum.

Hins vegar eru íbúðir í byggingu sem hlutfall af fjölda fullbúinna íbúða sundurgreint sem vísbending um vöxt sveitarfélags. Í Múlaþingi er hlutfallið 0,28% en 1,98% í Fjarðabyggð.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.