Stillt upp hjá Framsókn í Fjarðabyggð
Stillt verður upp á lista Framsóknarflokksins í Fjarðabyggð fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Ekki er enn komið í ljós hverjir af þeim sem fóru fyrir framboðinu í síðustu kosningum gefa kost á sér áfram.Samkvæmt heimildum Austurfréttar vinnur uppstillinganefnd að því að hafa samband við fyrri frambjóðendur og fá uppgefið hvort þeir hyggist gefa kost á sér áfram.
Flokkurinn kom að tveimur bæjarfulltrúum í síðustu kosningum, þeim Jóni Birni Hákonarsyni og Guðmundi Þorgrímssyni. Eftir því sem Austurfrétt kemst næst ætlar Jón Björn sér að halda áfram en enn á eftir að ræða við Guðmund sem snéri aftur í bæjarstjórn eftir veikindaleyfi um áramót.