Hanna Birna: Ráðuneytið hefur ekkert að fela
Hanna Birna Kristjánsdóttir, innanríkisráðherra, segir ekkert að fela hjá ráðuneytinu við það hvernig minnisblað úr ráðuneytinu um með viðkvæmum persónuupplýsingum um hælisleitanda barst í hendur fjölmiðla. Ríkissaksóknari fól í dag lögreglunni að rannsaka hvernig það gerðist.„Við höfum ekkert að fela," sagði hún á opnum fundi sjálfstæðismanna á Héraði í dag. „Ríkissaksóknari ákvað, meðal annars að okkar undirlagi, að rannsaka málið frekar."
Hún sagði „hælisleitanda hafa ákveðið að kæra" ráðuneytið. Það hefði sjálft „ekki burði" til að rannsaka málið en því verið komið í hendur þar til bærra aðila.
Í yfirlýsingu frá ríkissaksóknara í dag kom fram að embættinu hefðu í gær borist upplýsingar og gögn frá ráðuneytinu vegna kærunnar.
Í kjölfarið hefði kæran og gögnin úr ráðuneytinu verið framsend til „viðeigandi meðferðar" hjá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu.