Stofna félag um þjónustu og verslun á Fljótsdalshéraði
Í fyrramálið verður haldinn fundur stofnfundur félags verslunar- og þjónustuaðila á Fljótsdalshéraði. Tilgangur félagsins er að auka arðsemi í þessum geirum á svæðinu.Stofnunin á sér nokkurn aðdraganda en undanfarin misseri hafa fulltrúar frá ferðaþjónustu, úr verslun og frá sveitarfélaginu unnið að því að greina þjónustusamfélagið og benda á leiðir til að efla það.
Í þessum samræðum hefur komið fram mikilvægi þess að til sé sameiginlegur vettvangur til að þessir aðilar geti unnið saman og til stendur að stofna hann á fundinum í morgun.
Í drögum að samþykktum fyrir félagið kemur fram að meginmarkmið þess séu m.a. að fjölga viðskiptavinum verslunar-, þjónustu- og ferðaþjónustufyrirtækja, lengja dvöl þeirra gesta sem hverju sinni heimsækja svæðið, lengja ferðamannatímann þannig að hann nái yfir sem stærstan hluta ársins, hvetja til aukinna gæða og fagmennsku í starfsemi félagsaðila, efla Egilsstaði enn freka sem verslunar- og þjónustumiðstöð, efla innbyrðis tengsl og þekkingu fyrirtækja á Héraði.
Fljótsdalshérað hefur ákveðið að leggja til fjármuni til reksturs starfsmanns sem sinni markaðsmálum og öðrum verkefnum sem mikilvæg eru hagsmunaaðilum. Gert er ráð fyrir að þessi starfsmaður verði á vegum félagsins.
Fundurinn hefst klukkan 9:00 á Hótel Héraði
- Þjónustusamfélagið Fljótsdalshérað – stutt kynning á helstu niðurstöðum aðgerðaáætlunar
- Verkefni sveitarfélagsins, næstu skref - stutt kynning
- visitegilsstadir.is, stutt kynning á markaðs- og upplýsingavef fyrir hagsmunaaðila á Héraði
- Húsavíkurstofa, stutt kynning á Húsavíkurstofu sem er miðstöð hagsmunaaðila í verslun og þjónustu á svæðinu
- Ríki Vatnajökuls, stutt kynning á ferðaþjónustu, matar- og menningarklasa
- Stofnun félags hagsmunaaðila
- Kosning stjórnar og formanns
Í tilkynningu segir að þess sé vænst að allir þeir sem standa fyrir rekstri í ferðaþjónustu, verslun og öðrum þjónustugreinum á Héraði mæti á fundinn og hann geti þannig orðið upphafið að samstilltu og kraftmiklu átaki sem miði að því að efla hag atvinnugreinanna.