Óðinn Gunnar: Flóðbylgjan er að koma, eru veiðarfærin í lagi?
Hugmyndir eru uppi um töluverðar breytingar á ásýnd þéttbýlisins á Egilsstöðum til að gera það meira aðlaðandi fyrir gesti staðarins sem og íbúa. Samvinna er mikilvæg til að efla staðinn sem ferðamannastað.Þetta kom fram í máli Óðins Gunnars Óðinssonar, atvinnu-, menningar- og íþróttafulltrúa Fljótsdalshéraðs á stofnfundi félags um þjónustusamfélagið Fljótsdalshérað í morgun.
Segja má að stofnfundurinn sé afrakstur tveggja ára undirbúningsvinnu til að efla verslun og þjónustu á Fljótsdalshéraði sem Óðinn Gunnar segir ljóst að séu „lykilatvinnugreinar" á svæðinu.
Spár virðast vera að rætast um mikla fjölgun ferðamanna hérlendis og Óðinn spyr hvort menn séu tilbúnir að taka á móti ferðamönnunum.
„Tími okkar er að koma. Flóðbylgjan er á leiðinni yfir landið. Kosturinn við að vera síðastir er að við getum lært af öðrum. Spurningin er hvernig við ætlum að taka á móti henni og hvort veiðarfærin séu í lagi?"
Óðinn Gunnar sagði samstarfsvettvang á borð við þann sem stofnaður var í morgun mikilvægan fyrir svæðið. Út á við verði menn að vinna saman þótt keppt sé innbyrðis. Eftir allt hagnist allir á stærri köku.
Menn þurfi að standa saman í mótun stefnunnar og vera tilbúnir að fylgja eftir þeim ákvörðunum sem teknar eru.
Vörumerki staðarins þarf að vera vel skilgreint til að markaðssetning verði markviss. Í því hefur verið unnið fyrir Fljótsdalshéraðs þótt vinnunni sé ekki lokið.
Í undirbúningsvinnunni hefur talsvert verið rætt um ásýnd bæjarins en komið er inn á iðnaðarsvæði í Fellabæ og á Egilsstöðum nánast úr sama hvaða átt menn koma. Þá þarf að skoða ásýnd miðbæjarins á Egilsstöðum en til stendur að fara yfir deiliskipulag svæðisins.
„Miðbæir eru mikilvægir því þar þjappast saman þjónustan og eins einstaklingar sem sækja í þjónustuna. Við höfum fengið að heyra það frá samstarfsaðilum okkar sem vinna að því að koma ferðamönnum til okkar að ásýnd miðbæjarins sé ekki nógu góð.