Uppstillingarnefnd hefur hafið störf hjá Framsóknarflokknum á Seyðisfirði
Stillt verður upp á lista Framsóknarflokksins á Seyðisfirði fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Von er á að listinn verði tilbúinn í byrjun mars.„Uppstillingarnefnd hittist í fyrsta skiptið í fyrradag og við stefnum svo að því að hafa fund í byrjun mars þar sem væntanlega verða kynntar hugmyndir að lista," segir Eydís Bára Jóhannsdóttir, formaður nefndarinnar.
Eydís Bára á sæti í bæjarstjórninni í dag ásamt bæjarstjóranum Vilhjálmi Jónssyni. Flokkurinn er í meirihluta ásamt Sjálfstæðisflokki.
Þau svöruðu ekki fyrirspurn Austurfréttar um hvort þau hyggðust gefa kost á sér áfram til setu í bæjarstjórn.