Barri semur um afhendingu á 354.000 plöntum til landgræðsluskóga

skuli bjorns jolatre 0002 webGróðrarstöðin Barri samdi nýverið við Skógræktarfélag Íslands um afhendingu á ríflega 350 þúsund plöntum til verkefnisins Landgræðsluskóga. Framkvæmdastjóri Barra segir samninginn styrkja rekstrargrundvöll fyrirtækisins.

Um er að ræða tvo samninga. Undir þann seinni var skrifað á föstudag að undangenginni verðkönnun en í fyrri samningnum var fyrst og fremst um að ræða plötur sem voru til í birgðum.

Skúli Björnsson, framkvæmdastjóri Barra, segir að samningarnir feli alls í sér afhendingu á 354.000 plöntum að andvirði um 15 milljóna króna.

„Þessir samningar styrkja þær rekstaráætlanir sem við höfum gert og vonandi tekst okkur að ná í frekari verkefni til að nýta megi betur bæði gróðurhúsin og aðra aðstöðu á Valgerðarstöðum," segir Skúli um þýðingu samninganna fyrir Barra.

Strax verður hafist handa við ræktun plantnanna. „Um tvo þriðju hluta af þessum plöntum þarf að hefja ræktun í mars og byrjun apríl. Þetta þýðir að við þurfum að hefja undirbúning að sáningu nú þegar með öflun á fræjum og stiklingum ásamt ræktunarefnum.

Þá þurfum við að hefja vinnu við annan undirbúning fyrir sáningu til að vera tilbúinn þegar sól hefur hækkað nægilega á lofti til að hefja ræktun."

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar