Hættulega lágt upp í háspennulínur á Fjarðarheiði
Mikil snjósöfnun á Austurlandi síðustu daga og vikur hefur orðið til þess að hættulega stutt er orðið upp í raflínur á Fjarðarheiði. Útivistarfólk er hvatt til að fara með gát á austfirskum fjöllum.Í tilkynningu frá Landsneti er útivistarfólk, einkum skíða- vélsleðafólk, hvatt til að fara „mjög varlega" nærri háspennulínum til fjalla og á hálendinu.
Þar sé nú víða minna en mannhæðar hátt upp í háspennuvíra. „Það er þykkt lag af snjó yfir öllu og orðið stutt upp í leiðara þannig menn verða að fara varlega," segir Ragnar Bjarni Jónsson, verkefnisstjóri hjá Landsneti.
Á Austurlandi er ástandið verst á Fjarðarheiði. Ragnar Bjarni segir að línumenn hafi reynt að fara yfir Oddsskarð í gær en ekki komist yfir vegna veðurs.
„Fjarðarheiðin er helsti hættulegi staðurinn en það er ofboðslega mikill snjór alls staðar þannig fólk verður að fara varlega."
Í tilkynningu Landsnets segir að lítil hæð upp í línurnar geti skapað mikla hættu fyrir þá sem eru á ferðinni á skíðum eða vélsleðum.
Ísing er einnig víða á háspennulínum og getur hún gert það að verkum að bæði leiðarar og möstur verða nær ósýnileg þeim sem eru á ferðinni.
Myndir frá Fjarðarheiði: Landsnet