Lögreglan leitar að vitnum að árekstri á Egilsstöðum
Lögreglan á Egilsstöðum óskar eftir því að ná sambandi við ökumann bifreiðar sem ók utan í dökka Cherokee jeppabifreið á bifreiðastæðinu við Bónus á Egilsstöðum í gær, sunnudag, um klukkan 14:00 eða hvern þann sem einhverja vitneskju hefur um málið.Þeir sem geta veitt lögreglu upplýsingar um málið eru beðnir um að hafa samband við lögregluna á Egilsstöðum í síma 470-2140.