Sjáið snjóflóðið í Fannardal úr lofti - Myndir
Snjóflóð féll í Fannardal í fyrrinótt skammt við athafnasvæði Metrostav sem vinnur að gerð nýrra Norðfjarðarganga. Snjóflóðið var nokkuð kraftmikið og staðnæmdist um tíu metra frá veginum sem liggur inn í göngin.Engar skemmdir hlutust í flóðinu sem átti upptök sín í gili fyrir ofan svæðið. Talið er að mikil úrkoma hafi komið því af stað.
Meðfylgjandi loftmyndir af flóðinu tók Hlynur Sveinsson í Neskaupstað.