Harma stefnu Fjarðabyggðar í málum Norrænu: Óttast ekki að missa ferjuna úr fjórðungnum
Bæjarráð Seyðisfjarðarkaupstaðar harmar vinnu Fjarðabyggðar í málefnum ferjunnar Norrænu. Formaður bæjarráðs segist ekki óttast að Smyril-Line flytji starfsemi sína úr fjórðungnum ef ekki takast samningar við Fjarðabyggð.„Bæjarráð Seyðisfjarðar harmar þá stefnu sem hafnarstjórn og bæjarráð Fjarðabyggður hafa tekið í málinu. [...] Sérstaklega með hliðsjón af margítrekuðum ályktunum aðalfunda SSA um fyrirkomulag og uppbyggingu samgöngumannvirkja á Austurlandi," segir í bókun sem bæjarráð Seyðisfjarðarkaupstaðar samþykkti á fundi sínum í gærkvöldi.
Bókun er andsvar við ákvörðun hafnarstjórnar og bæjarráðs Fjarðabyggðar að halda áfram viðræðum við forsvarsmenn Smyril-Line, sem gerir út Norrænu, um að ferjan sigli til Eskifjarðar í stað Seyðisfjarðar eins og hún gerir í dag.
Í samtali við Austurfrétt í dag vísaði Margrét Guðjónsdóttir, formaður bæjarráð í samþykktir frá þingum Sambands sveitarfélaga á Austurlandi þar sem talað er að mikilvægt sé að nýta uppbyggingu ferjuhafnarinnar á Seyðisfirði og markaðssetja hana sem helstu ferju- og skemmtiferðaskipahöfn Austurlands.
Í bókuninni er bæjarstjóra falið að óska eftir að stjórn SSA fundi á Seyðisfirði sem fyrst til að fara yfir málið.
Aðspurð sagðist Margrét ekki telja líkur á að Smyril-Line myndi velja sér áfangastað utan Austurlands ef Fjarðabyggð hefði ekki tekið undir óskir fyrirtækisins um viðræður.
„Mér finnst það afar ólíklegt. Ég held að það sé engin hætta á að Norræna sigli til annars staðar en Austurlands."
Bæjarstjórn Seyðisfjarðar hefur síðan í haust óskað eftir viðræðum við forsvarsmenn Smyril-Line um málið. Margrét staðfest að þeir hefðu ekki orðið við óskum um formlegan fund.