Gjaldkeri starfsmannafélags Fjarðaáls grunaður um fjárdrátt: Umtalsverðar upphæðir
Gjaldkeri Sóma, starfsmannafélags Alcoa Fjarðaáls, hefur verið kærður til lögreglu en grunur leikur á að hann hafi dregið sér umtalsverðar upphæðir úr sjóðum félagsins.Málið mun hafa uppgötvast við gerð ársreiknings fyrir félagið. Gjaldkeranum hefur verið vikið frá störfum, bæði hjá starfsmannafélaginu og Fjarðaáli, á meðan lögregla rannsakar málið.
„Málið varðar bara einn einstakling og er á engan hátt lýsandi fyrir okkar starfsmenn. Við störfum eftir ströngum siðferðisgildum hjá Alcoa Fjarðaál og beitum okkur í þá veru," segir Dagmar Ýr Stefánsdóttir, upplýsingafulltrúi Fjarðaáls.
Hún sagði óljóst um hversu háa upphæð væri að ræða en samkvæmt heimildum Austurfréttar er um að ræða „stóra upphæð" sem hleypur á milljónum króna.