Síldarvinnslan kaupir Gullberg UPPFÆRT
Síldarvinnslan hefur gengið frá kaupum á útgerðinni Gullbergi sem gerir út togarann Gullver og frystihúsinu Brimbergi á Seyðisfirði. Starfsfólk hefur verið boðað til fundar klukkan tíu.Fundað var fyrr í morgun með bæjarstjórn Seyðisfjarðar fyrr í morgun.
Tíu dagar eru síðan Adolf Guðmundsson, framkvæmdastjóri útgerðarinnar neitaði því í samtali við DV að til stæði að selja útgerðina. „Það er bara ekkert til í því. Ekkert svoleiðis í gangi.“
Þá hafnaði hann jafnframt því að hluthafar í útgerðinni hefðu nokkurn hug á að selja og bætti við að þeim tilboðum sem í útgerðina hefðu borist í gegnum tíðina hefði verið hafnað.
Síldarvinnslan birti á ellefta timanum tilkynningu um kaupin. Þar kemur fram að áfram verði gert út frá Seyðisfirði og lögð áhersla á að tryggja áframhaldandi framleiðslustörf í byggðarlaginu. Einnig að kaupin eru háð samþykk Samkeppniseftirlitsins.
Síldarvinnslan hf. hefur keypt öll hlutabréf í Gullbergi ehf. á Seyðisfirði sem gerir út togarann Gullver NS 12. Samhliða kaupum á togaranum keypti Síldarvinnslan húsnæði og búnað Brimbergs til fiskvinnslu á Seyðisfirði. Áfram verður gert út frá Seyðisfirði og lögðáhersla á að tryggja áframhaldandi framleiðslustörf tengd sjávarútvegi í byggðarlaginu. Fyrir rekur Síldarvinnslan fiskimjölsverksmiðju á Seyðisfirði.
Kaupin eru liður í að styðja við starfsemi Síldarvinnslunnar á Austurlandi. Með því að hafa útgerð og vinnslu á sömu hendi er traustari stoðum skotið undir heilsársstörf og atvinnulíf í byggðarlaginu. Það hefur verið stefna Síldarvinnslunnar að auka við sig bolfiskheimildir og breikka rekstrargrundvöll félagsins. Megináhersla síðustu áratugi hefur verið á veiðar og vinnslu uppsjávartegunda. Kaupin á Gullbergi eru í takt við áherslu stjórnenda Síldarvinnslunnar að fjölgagrunnstoðum í rekstri félagsins.
Gullver NS 12 er 674 tonna skuttogari, tæplega 50 metra langur og smíðaður í Noregi árið 1983. Aflamark togarans á yfirstandandi fiskveiðiári, 2014-2015, nemur 2.855 þorskígildistonnum.