Ökumaður slasaðist í bílveltu á Jökuldal

logreglanÖkumaður jepplings var fluttur nokkuð slasaður á heilsugæsluna á Egilsstöðum eftir bílveltu á Jökuldal eftir hádegið í dag.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu fór bíllinn út af veginum á milli Hjarðarhaga og Rjúkanda og fór þrjár veltur.

Ökumaðurinn var einn í bílnum og í bílbelti en var nokkuð slasaður.

Jepplingurinn er gjörónýtur.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar