Mjög jákvæð teikn um möguleika á millilandaflugi

thota egs 14042015 0019 snyrt webFramkvæmdastjóri Austurbrúar segir mjög jákvæð teikn á lofti" í viðræðum við stóran breskan ferðaþjónustuaðila um beint flug á milli Egilsstaða og Englands á næsta ári. Næsta viðræðulota verður í ágúst.

Austurbrú hefur leitt málið fyrir hönd Austfirðinga síðustu mánuði. Fundað var eystra í gær og syðra í dag. Ekkert er enn fast í hendi en áfram verður haldið í ágúst.

„Við erum að draga saman viðbrögð og áhuga fólks og reyna að púsla hlutunum saman," sagði Jóna Árný í samtali við Austurfrétt í dag.

„Við höfum unnið ötullega að þessu undanfarna mánuði og erum virkilega að gera allt hvað við getum til að ná þessu heim og saman.

Það eru mjög jákvæð teikn á lofti. Við höldum áfram að vinna á fullu næstu vikur og reiknum með að vita meira í byrjun ágúst."

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.