Hlýr september bjargar vatnsstöðu í Hálslóni

karahnjukarLandsvirkjun hefur frestað mögulegri takmörkun á afhendingu rafmagns til viðskiptavina um einn mánuð. Met var nýverið sett í innrennsli á einum degi í Hálslón.

Sunnudaginn 13. september mældist dagsmeðtal innrennslis í lónið 580 m3/s sem er mesta innrennsli sem mælst hefur í lónið á einum degi í september.

Á föstudag hafði hækkað um Hálslóni um 12 metra og fylling miðlunarinnar farið úr 59% í 84%.

Í morgun var vatnsyfirborð í lóninu komið í 620,3 metra en lónið telst fullt og fer á yfirfall í 625 metrum. Ólíklegt virðist að það náist fyrir veturinn.

Það er töluvert önnur staða en í júlí og ágúst þegar vatnsyfirborðið var 20 metrum lægra en í meðalári. Landvirkjun tilkynnti þá að mögulega þyrfti að draga úr raforkuframboði en eftir hlýja daga í september hefur sú ákvörðun verið endurskoðuð..

Í tilkynningu sem fyrirtækið sendi frá sér um helgina segir hins vegar að vatnsárið teljist enn þurrt og enn ríki óvissa um fyllingu miðlunarlóna

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar