Aðalfundur Sambands sveitarfélaga á Austurlandi settur í morgun
Aðalfundur Sambands sveitarfélaga á Austurlandi (SSA) var settur á á Hótel Framtíð, Djúpavogi í morgun. Sveitarstjórnarmenn þeirra átta sveitarfélaga sem mynda landshlutasamtökin munu þar móta sameiginlegar áherslur landshlutans auk þess að ræða þau tækifæri og áskoranir sem sveitarfélögin standa frammi fyrir.Fjölbreytt dagskrá verður á aðalfundinum. Meðal annars verður boðið upp á fimm málstofur þar sem fjallað verður um þjónustu við fatlað fólk, almenningssamgöngur, svæðisskipulag, umhverfismál og ljósleiðaravæðingu.
Hátíðarávarp verður í höndum Ólafar Nordal innanríkisráðherra en innanríkisráðuneytið fer með málefni sveitarfélaga. Auk þess munu velflestir þingmenn kjördæmisins sitja fundinn. Samþykkt ályktana er megin verkefni aðalfundar en þær móta stefnu landshlutans á öllum sviðum.
Hefð er fyrir því að afhenda Menningarverðlaun SSA í hátíðarkvöldverði auk þess sem sveitarstjórnarmaður af svæðinu er heiðraður. Fundinum lýkur síðan eftir hádegi á morgun.