Enginn sótti um stöðu héraðsdýralæknis
Engin umsókn barst um stöðu héraðsdýralæknis á Austurlandi áður en umsóknarfrestur rann út fyrir tíu dögum. Staðan hefur verið laus síðan í vor.Þetta er í annað skiptið á árinu sem reynt er að auglýsa stöðuna. Vandræðin hófust hins vegar fyrr þegar ekki tókst að fá afleysingalæknir þegar þáverandi héraðsdýralæknir fór í fæðingarorlof fyrir um ári.
Þá hefur gengið misjafnlega að gera þjónustusamning við dýralækni á svæðinu um að sinna vaktþjónustu.