Kolbeinn Aðalsteins: Tökum á verðtryggingunni og skuldamálum heimilanna í ríkisstjórn
Skuldavandamál heimilanna og afnám verðtryggingarinnar eru forgangsmálefni Hægri grænna fyrir komandi kosningar. Þeir segjast leggja áhersluá framtíðarsýn og raunsæjar lausnir.„Skuldavandamál heimilanna og afnám verðtryggingarinnar eru þau málefni sem við ætlum að ganga bundnir með inn í ríkisstjórn,“ sagði Kolbeinn Aðalsteinsson, sem er í öðru sæti á lista flokksins í Norðausturkjördæmi á opnum framboðsfundi í Menntaskólanum á Egilsstöðum fyrir skemmstu.
Hann sagðist þakka fráfarandi ríkisstjórn fyrir vinnu hennar undanfarin fjögur ár en nú vanti framtíðarsýn. Hægri grænir leggi áherslu á raunsæjar lausnir, til dæmis afnámi verðtryggingarinnar sem sé íslenskum gjaldmiðli fjötur um fót.
Í fyrirspurnartíma sagði Kolbeinn að rétt væri að gera auknar kröfur til þingmanna sem kjósa að sitja hjá við afgreiðslu mála. „Þeir eiga að skrifa ritgerð um af hverju þeir sitja hjá og birta í blöðunum. Þetta er leti í starfi eða eitthvað annað og þá að opinbera hana.“
Hlusta má á fundinn í heild sinni á vef Útvarps Seyðisfjarðar.