Tvær bílveltur í gær
Lögreglan á Egilsstöðum var tvisvar kölluð út í gær vegna bílvelta. Vörubíll fór út af veginum um Fagradal og jeppabifreið á Háreksstaðaleið. Ökumaður hennar slasaðist nokkuð.Flutningabíll frá Nesfrakt fór út af skammt frá sæluhúsinu á Fagradal um klukkan hálf níu í gærmorgun og valt eina veltu. Lúmsk hálka var á veginum. Ökumaður meiddist lítið.
Lögreglan var aftur kölluð út klukkan hálf fjögur í gær vegna bílveltu á Háreksstaðaleið. Ökumaður hennar var nokkuð slasaður og var fyrst fluttur með sjúkrabíl í Egilsstaði en þaðan með sjúkraflugi til Reykjavíkur.
Þetta voru verkefni lögreglunnar í gær en lögregluliðið var undirmannað eystra í gær eins og víðast annars staðar á landinu.