Vill að kynjafræði verði skyldufag í framhaldsskóla
Ingibjörg Þórðardóttir, varaþingmaður og framhaldsskólakennari úr Neskaupstað, vill að grunnáfangi í kynjafræði verði gerður að skyldufagi á öllum brautum framhaldsskóla. Mikil vakning hafi orðið eftir að nokkrir skólar fóru að kenna kynjafræði sem valfag.Ingibjörg tók sæti sem varaþingmaður í síðustu viku í fjarveru Steingríms J. Sigfússonar. Í fyrstu ræðu sinni þar benti hún á dæmi Borgarholtsskóla sem hóf að kenna kynjafræði sem valfag árið 2007. Fleiri skólar hafi fylgt í kjölfarið.
„Margir nemendur komu fram í fjölmiðlum og sögðu frá reynslu sinni af námi í kynjafræði. Voru þeir á einu máli um að kynjafræðin hefði ekki aðeins breytt hugmyndum þeirra um stöðu kynjanna heldur hefði hún almennt gert þá meðvitaðri um mannréttindi og lýðræði," sagði Ingjbörg.
Í kynjafræðinni er meðal annars fjallað um vændi, mansal, hinsegin-málefni, stjórnmál, völd, staðalímyndir, klám og klámvæðingu.
Ingibjörg sagði reynslu sína vera að nemendur væru almennt illa að sér í þessum málum og yrðu oft fyrir mikilli uppljómun í tímunum. „Margir nemendur hafa sagt að þeir líti lífið einfaldlega öðrum augum eftir að hafa setið kynjafræðiáfanga.
Leiðin að jafnrétti kynjanna hlýtur að liggja í gegnum menntun og fræðslu. Ef við ætlum að ná fram raunverulegu jafnrétti í þessu samfélagi ættum við að vera með markvissa jafnréttisfræðslu á öllum skólastigum og ekki síst í framhaldsskólum."