Smygl í Norrænu: Fóru í dýra Íslandsferð þrátt fyrir að vera í fjárhagskröggum
Hollensk kona sem grunuð er um að hafa staðið í stórfelldu fíkniefnasmygli ásamt með Norrænu í byrjun september er laus úr gæsluvarðhaldi en sætir nú farbanni. Ósamræmi þykir vera í framburði hjónanna.Komið er inn á ósamræmið í gæsluvarðhaldsúrskurði Norðurlands eystra frá í síðustu viku. Maðurinn hefur játað sök í málinu en heldur því fram að konan hafi ekkert vitað um efnin.
Þar kemur fram að konan hafi vitað af fjárhagskröggum eiginmanns síns en þau hafi samt ákveðið að fara í dýra Íslandsferð. Engar skynsamlegar skýringar hafi komið fram á hvaðan hún telji peninga til fararinnar hafa komið og sé hún því enn undir rökstuddum grun um að hafa tekið þátt í smyglinu.
Hæstiréttur felldi í morgun gæsluvarðhaldsúrskurðinn úr gildi en úrskurðaði konuna í staðinn í farbann sem eigi að vera nægt til að tryggja nærveru hennar.
Hún hefur setið í gæsluvarðandi frá 9. september og var fyrst í einangrun. Um 80 kíló af MDMA fundust falin í húsbíl hjónanna við tollskoðun á Seyðisfirði. Brotið varðar allt að 12 ára fangelsi.