Hrund hætt í hreppsnefnd Vopnafjarðar
Hrund Snorradóttir hefur látið af störfum sem fulltrúi í sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps þar sem hún er flutt af svæðinu.Hrund var í öðru sæti lista framsóknarmanna og óháðra í sveitarfélaginu fyrir sveitastjórnarkosningarnar í fyrra en listinn kom þremur mönnum að.
Í bréfi Hrundar til sveitarstjórnar þar sem hún óskar leyfis frá störfum bendir hún á að hún hafi flutt lögheimili sitt til Reykjavíkur og þar með misst kjörgengi í hreppnum.
Víglundur Páll Einarsson, sem var í fjórða sæti listans, tekur sæti hennar.