Bein útsending frá framboðsfundi
Austurfrétt og Útvarp Seyðisfjörður standa sameiginlega að beinni útsendingu frá framboðsfundi í Menntaskólanum á Egilsstöðum. Útsendinguna má nálgast með að smella hér: http://utvarpsey.listen2myradio.com/Níu framboð mæta til leiks í kvöld. Ellefu boðuðu sig upphaflega en fulltrúar Landsbyggðarflokksins og Flokks heimilanna afboðuðu sig.
Björt framtíð: Brynhildur Pétursdóttir
Dögun: Gísli Tryggvason
Framsóknarflokkurinn: Höskuldur Þórhallsson
Hægri grænir: Kolbeinn Aðalsteinsson
Lýðræðisvaktin: Sigríður Lára Sigurjónsdóttir
Píratar: Aðalheiður Ámundadóttir
Regnboginn: Þorsteinn Bergsson
Samfylkingin: Jónína Rós Guðmundsdóttir
Sjálfstæðisflokkurinn: Ásta Kristín Sigurjónsdóttir
Vinstrihreyfingin - grænt framboð: Steingrímur J. Sigfússon
Fundarstjóri: Helgi Seljan
Hver flokkur verður með þriggja mínútna framsöguræður. Að þeim loknum verður stutt hlé og síðan opnað fyrir spurningar um sal. Fundurinn er skipulagður af nemendum í stjórnmálafræði í ME.