Safna fyrir fjölskyldu Lilju Ránar
Stofnaður hefur verið sjóður til styrktar foreldrum sem misstu unga dóttur á sviplegan hátt af slysförum í Breiðdal um páskana.Sjóðurinn er hýstur í útibúi Arion banka á Egilsstöðum. Reikningsnúmerið er 0305-13-155656 og er skráður á kennitölu móðurinnar 080675-4029. Sjóðurinn heitir einfaldlega „Styrktarsjóður Lilju Ránar“ og til heimilis að Tjarnarlöndum 22 á Egilsstöðum þar sem fjölskyldan býr.
Lilja Rán Björnsdóttir lést af slysförum í Breiðdal á páskadag. Hún varð þriggja ára þann 2. febrúar síðastliðinn.
Faðir hennar heitir Björn Jónsson frá Laugum í Reykjadal í Suður-Þingeyjarsýslu. Móðir hennar heitir Sigrún Ragna Rafnsdóttir frá Skjöldólfsstöðum í Breiðdal. Lilja Rán átti tvær systur, Sunnevu Rós og Guðnýju Ósk.